Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 05. ágúst 2022 07:15
Fótbolti.net
Fantasy Premier League - Frídeildin af stað á ný
Frídeildin.is
Frídeildin.is
Mynd: Frídeildin

Enska úrvalsdeildin hefur göngu sína í kvöld þegar Crystal Palace tekur á móti Arsenal. Frídeildin sem hóf göngu sína fyrir tveimur árum og er að hefja sitt þriðja leiktímabil hefur opnað fyrir skráningar.

Vefsíðan þjónustar Fantasy Premier League með því að halda úti og reka fyrirtækjadeildir sem spilarar þekkja. Engin þörf er á að halda úti liði á tveimur stöðum þar sem Frídeildin.is sér um að lesa stigin þín frá Fantasy Premier League. Það kostar ekkert að skrá sig og verða veglegir vinningar greiddir út reglulega


Frídeildin.is er í samstarfi við öflug fyrirtæki sem hafa skuldbundið sig til útgreiðslu vinninga. Þetta leiktímabil bjóðum við upp á glæsilegar deildir frá Símanum Sport, Bónus og Tuborg léttöl. Þá er aldrei að vita nema fleiri deildir verði kynntar til leiks þegar líða tekur á tímabilið. Stigin eru uppfærð í rauntíma. Þá er nýjung í ár hjá Frídeildinni að allar deildir sem notendur eru skráðir í, gjarnan við vini, fjölskyldu og/eða vinnufélaga, birtast þeim líka á vefsvæði sínu hjá Frídeildinni og þannig tilvalið að fylgjast með lifandi stöðu ásamt spjallmöguleikum.

Ef þú hefur ekki stofnað Fantasy lið er um að gera að hafa snör handtök og skrá sig til leiks en enska úrvalsdeildin hefst sem fyrr segir í kvöld.

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS HÉR


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner