Það var Íslendingaslagur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley fengu Gylfa Þór Sigurðsson og félaga hans í Everton í heimsókn.
Everton missti mann af velli með rautt spjald og Burnley nýtti sér það og vann 1-0 sigur. Jeff Hendrick skoraði sigurmarkið.
Jóhann Berg snéri aftur í byrjunarlið Burnley í dag og skilið góðri vinnu, hann fékk sjö í einkunn hjá Sky Sports. Gylfi fékk hins vegar heldur lægri einkunn, hann fékk fimm.
Pressan er orðin nokkuð mikil á Marco Silva stjóra Everton en liðið hefur byrjað illa og er aðeins einu stig frá fallsæti.
Einkunnir Burnley: Pope (6), Lowton (7), Pieters (6), Tarkowski (7), Mee (7), Hendrick (8), Westwood (8), Jóhann Berg (7), McNeil (8), Barnes (6), Wood (6).
Varamenn:Taylor (6), Rodriguez (6).
Einkunnir Everton: Pickford (6), Coleman (5), Digne (6), Keane (7), Mina (7), Schneiderlin (5), Delph (6), Gylfi Þór (5), Iwobi (5), Richarlison (6), Calvert-Lewin (5).
Varamenn: Sidibe (6), Kean (5).
Maður leiksins: Ashley Westwood.
Athugasemdir