Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2020 10:19
Magnús Már Einarsson
Balotelli til Watford?
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli, framherji Brescia, er í dag orðaður við félagaskipti til Watford.

Watford féll úr ensku Championship deildinni í sumar og framherjavandræði eru hjá félaginu.

Troy Deeney og Andre Gray eru meiddir og þá hefur Danny Welbeck ekkert sést á þessu tímabili.

Watford fékk framherjann Glenn Murray frá Brighton í sumar en hann hefur lítið spilað hingað til.

Hinn þrítugi Balotelli er nú orðaður við Watford en Besiktas í Tyrklandi hefur líka áhuga á honum. Líklegt þykir að Balotelli fari frá Brescia sem féll úr Serie A í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner