07.08.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Michael kveður Lyngby - Tekur sér pásu frá þjálfun til að ferðast

Mynd: Lyngby

Mynd: Lyngby

Mynd: Lyngby
Michael John Kingdon, sem hefur þjálfað U19 ára lið Lyngby síðasta árið og verið hluti af þjálfarateymi aðalliðsins, er hættur störfum hjá félaginu. Hann byrjaði sem greinandi hjá félaginu og tók svo við U19 liði þess.
Michael byrjaði sem yngri flokka þjálfari hjá Fylki, uppeldisfélaginu, og árið 2022 var hann ráðinn sem leikgreinandi meistaraflokks og sinnti því starfi út tímabilið 2024. Í byrjun árs 2025 hóf hann svo að starfa hjá Lyngby.
Hann náði góðum árangri með U19 ára liðið og hafði félag í Sádi-Arabíu að fá hann til starfa snemma á þessu ári, en Michael hafnaði því tilboði. Hann er 28 ára og er með UEFA A þjálfaragráðuna.
Hjá U19 liði Lyngby vann Michael með unglingalandsliðsmanninum Jakobi Gunnari Sigurðssyni sem átti gott tímabil með liðinu. Aðallið Lyngby vann sér aftur inn sæti í dönsku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili og þar spila þeir Ísak Snær Þorvaldsson, Daníel Freyr Kristjánsson og Davíð Helgi Aronsson er á láni frá Víkingi.

„Frá fyrsta degi small Michael beint inní DNA klúbbsins. Það er gríðarleg eftirsjá að horfa á eftir Michael enda er hann hrikalega efnilegur og fær þjálfari og vel liðinn af öllum leikmönnum og starfsfólki. Hann hefur unnið frábært starf hérna og við virðum ákvörðun hans og óskum honum góðs gengis," segir Nicas Kjeldsen sem er yfirmaður íþróttamála hjá Lyngby.
„Árin mín hjá Lyngby hafa verið bestu ár lífs míns og það er gríðarleg erfið ákvörðun að fara en þetta er rétti tímapunkturinn. Ég mun alltaf vera ævinlega þakklátur fólkinu sem ég vann með og þjálfaði. Ég ætla næstu mánuði að ferðast um Asíu og Suður Ameríku, víkka sjónarmiðið mitt á heiminum, upplifa aðrar menningu og heimsækja lið frá Japan, Brasilíu og Argentínu," segir Michael sjálfur.