Fotbolti.net
07.08.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

O'Neill útskrifaður af sjúkrahúsinu en óvíst hvort hann stýri um helgina

O'Neill útskrifaður af sjúkrahúsinu en óvíst hvort hann stýri um helgina
Canon

Mynd: EPA

Shaun Maloney, aðstoðarstjóri skoska stórveldisins Celtic, segir að enginn tímarammi sé ákveðinn fyrir endurkomu Martin O'Neill eftir smávægilega aðgerð.

O'Neill, sem er stjóri Celtic, er 74 ára en óvíst er hvort hann stýri liðinu um helgina. Hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu í gær.

Maloney segir að O'Neill muni sjálfur taka ákvörðun um hvort hann verði á varamannabekknum í leiknum gegn Kilmarnock á sunnudag.
O'Neill á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð
TENGT EFNI

O'Neill á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð

„Ég heimsótti hann í gærkvöldi,“ segir Maloney. „Það var mjög jákvætt. Hann var í góðu standi – miklu betri en á mánudag og þriðjudag. Vonandi helst þessi þróun.“

O'Neill stýrði Celtic til 1-0 sigurs gegn Dundee á mánudag en Maloney gat ekki sagt til um hvenær Norður-Írinn myndi snúa aftur.

„Við hittum hann í gærkvöldi til að ræða undirbúning fyrir leikinn en hann mætti ??ekki til vinnu í dag. Ég mun tala við hann í dag og þá tekur hann ákvörðun fyrir morgundaginn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.