Fotbolti.net
07.08.26 - 11:39
Elvar Geir Magnússon

Atletico í viðræðum um Romero

Atletico í viðræðum um Romero
Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid er í viðræðum um að fá til sín argentínska varnarmanninn Cristian Romero, fyrirliða Tottenham.
Búist er við því að Romero yfirgefi Spurs í sumar.

Inter hefur einnig sýnt þessum 28 ára gamla leikmanni áhuga, en hann lék alla sjö leiki Argentínu á leið liðsins í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í síðasta mánuði, þar sem það tapaði fyrir Spáni.

Romero hefur hins vegar lengi verið á óskalista Diego Simeone, þjálfara Atletico, og spænska félagið er að gera aðra tilraun til að fá miðvörðinn í sínar raðir.

Samkomulag um persónuleg kjör leikmannsins ætti ekki að verða vandamál. Roberto De Zerbi, stjóri Spurs, sagði nýlega að hann myndi „virða vilja“ leikmanna ef þeir vildu yfirgefa félagið.

Romero missti af lokakafla síðasta tímabils vegna hnémeiðsla, en Spurs tókst að bjarga sér frá falli í síðustu umferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.