Fotbolti.net
07.08.26 - 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leik KA og FH seinkað um stundarfjórðung

Úr leik KA og FH 2024.

Úr leik KA og FH 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Leik KA og FH á sunnudagskvöldið hefur verið seinkað um 15 mínútur. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í dag. Leikurinn er liður í 18. umferð Bestu deildar karla.

FH-ingar fljúga til Akureyrar fyrir leikinn og hentar þeim ágætlega að fá örlítið lengri tíma á Akureyri eftir lendingu.

Þá heldur KA N1 mót 6. flokks kvenna um helgina og hentar því þessi litla tilfærsla báðum félögum ágætlega.

FH situr í 12. sæti deildarinnar og KA er stigi fyrir ofan í 10. sætinu.
Af vef KSÍ:
Leik KA og FH sem leikinn verður á Greifavellinum á Akureyri sunnudaginn 9. ágúst hefur verið breytt lítillega. Leikurinn mun hefjast kl. 18:15 en ekki 18:00 eins og upphaflega var gefið út.

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.