07.08.26 - 10:50
Kári Snorrason
Valgeir stefnir að endurkomu í ágúst

Spilað fimm leiki í deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað fimm leiki í deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, hefur verið fjarri góðu gamni í tæpa þrjá mánuði vegna hnémeiðsla.
Valgeir meiddist á æfingu Breiðabliks fyrir bikarleikinn gegn Þrótti um miðjan maí og tognaði á liðbandi í hné. Valgeir er byrjaður að æfa á ný með liðinu og segir stefnuna setta að snúa aftur í leikmannahóp liðsins í ágúst.

„Stefnan er sett að ég komi til baka í hópinn í ágúst. Það er ekki ein dagsetning sem við stefnum að, bara hvernig mér líður og þetta þróast á æfingum,“ segir Valgeir í samtali við Fótbolta.net.
Valgeir er hægri bakvörður og var lykilmaður Breiðabliks í fyrra. Hann er fæddur árið 2002, uppalinn í HK og kom í Breiðablik frá Örebro eftir tímabilið 2024.
Meiðsli hafa verið að plaga leikmannahóp Breiðabliks en Höskuldur Gunnlaugsson og Aron Bjarnason hafa verið fjarverandi vegna meiðsla. Þá hefur Kristófer Ingi Kristinsson sömuleiðis verið frá en er að koma til baka.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 17 | +42 | 44 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 17 | +22 | 36 |
| 4 | Breiðablik | 17 | +8 | 29 |
| 5 | Keflavík | 17 | -5 | 22 |
| 6 | Valur | 17 | -7 | 19 |
| 7 | ÍA | 17 | -8 | 19 |
| 8 | Stjarnan | 17 | -11 | 18 |
| 9 | ÍBV | 17 | -9 | 16 |
| 10 | KA | 17 | -11 | 15 |
| 11 | Þór | 17 | -24 | 15 |
| 12 | FH | 17 | -11 | 14 |