07.08.26 - 14:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forest með augastað á Solanke

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nottignham Forest fylgist náið með stöðu Dominic Solanke hjá Tottenham og er Oliver Glasner, nýr stjóri Forest, sagður vilja fá enska framherjann í sínar raðir.
Það eru nokkuð fáir kostir í fremstu stöðu hjá Tottenham eins og stendur, en Richarlison, Mathys Tel og Solanke berjast um stöðuna að öllu óbreyttu.
Tottenham gæti verið tilbúið að selja ef gott tilboð býðst, því ekki er útilokað að Tottenham fari á eftir framherja á markaðnum.

Solanke er 28 ára og var keyptur frá Bournemouth fyrir tveimur árum. Hann hefur skorað 22 mörk í 65 leikjum en spilaði einungis 20 leiki á síðasta tímabli vegna meiðsla.