07.08.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Kveður Bruno - „Hann vildi fara til Arsenal“

Bruno Guimaraes.

Mynd: EPA

Matthias Jaissle er nýr stjóri Newcastle.

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes.

Mynd: EPA
Það er bara tímaspursmál hvenær Arsenal gengur frá kaupum á Bruno Guimaraes, miðjumanni og fyrirliða Newcastle. Brasilíumaðurinn bíður eftir því að skiptin fái grænt ljós.
Ross Wilson, íþróttastjóri Newcastle, segir að það hafi ekki verið planið að selja Bruno. Arsenal er að fara að kaupa hann á 75 milljónir punda.

„Það eru vonbrigði að sjá á eftir honum en hegðun Bruno var öll til fyrirmyndar, hann opnaði sig og var tilfinningaríkur. Hann sagði okkur hreint út að hann vildi breyta til og skipta um lið," segir Wilson.
„Það eitt gerir það ekki að verkum að hann geti farið en spilaði klárlega hlut í því hvernig við hugsuðum þetta. Það var ekki í áætlunum okkar eða hugsunum að hann myndi fara en við verðum að vera fljótir að bregðast við þegar eitthvað gerist."
Newcastle hefur misst marga lykilmenn. Sandro Tonali og Anthony Gordon fóru til Tottenham og Barcelona og Alexander Isak til Liverpool í fyrrasumar. Þjóðverjinn Matthias Jaissle tók þá nýlega við Newcastle eftir að Eddie Howe hætti.
Jaissle segir að ákvörðunin um Bruno hafi verið tekin áður en hann tók við. „Ég hitti hann aðeins en þá hafði þegar verið tekin ákvörðun. Við áttum gott spjall og hann er viðkunnalegur náungi. Hann er að fara í nýja áskorun og við þurfum að takast á við það," sagði Jaissle í vikunni.