07.08.26
Spáin fyrir enska - 16. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina með sérstakri spá fréttamanna Fótbolta.net fyrir deildina. Í dag er komið að því að kynna liðið sem er spáð 16. sætinu.
Nottingham Forest fór inn í síðasta tímabil með fullt af sjálfstrausti eftir að hafa tryggt sér Evrópusæti í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi. Það sem átti að verða næsta skref upp á við breyttist hins vegar fljótt í algjöra ringulreið. Nuno Espírito Santo var rekinn eftir aðeins þrjá leiki vegna ósættis og síðan komu tveir stjórar til viðbótar - Ange Postecoglou og Sean Dyche - og fóru áður en Vítor Pereira náði loks að snúa gengi liðsins við og tryggja áframhaldandi sæti í deildinni.
Morgan Gibbs-White var lykilmaður í þeirri viðspyrnu og blómstraði undir stjórn Pereira, en á sama tíma átti Forest frábært Evrópuævintýri. Liðið komst alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar eftir sigra á sterkum liðum á borð við Porto og Fenerbahce, þar sem nýi framherjinn Igor Jesus átti stóran þátt í velgengninni.
Það er aldrei dauð stund í kringum Forest og eigandann skrautlega, Evangelos Marinakis. Óróinn hélt áfram í sumar þegar Pereira var látinn fara skyndilega og Oliver Glasner ráðinn í hans stað. Forest er svo sannarlega eitt óútreiknanlegasta félag deildarinnar. Leikmannahópurinn býr yfir miklum gæðum, en stöðugleiki á hliðarlínunni hefur verið af skornum skammti og stuðningsmenn vilja eflaust bara helst rólegra tímabil.
Stjórinn: Oliver Glasner tekur við Nottingham Forest eftir viðburðaríkt sumar. Austurríkismaðurinn ákvað að yfirgefa Crystal Palace eftir tvö og hálft ár við stjórnvölinn og var meðal annars orðaður við AC Milan áður en hann kom mörgum á óvart með því að taka við Forest. Hann fékk þar býsna góðan samning. Glasner hefur skapað sér orðspor sem einn af áhugaverðari þjálfurum Evrópu eftir velgengni með Eintracht Frankfurt og Crystal Palace, þar sem hann hefur lagt áherslu á agaðan varnarleik og skyndisóknir. Spurningin er hvort honum takist að skapa þann stöðugleika sem Forest hefur sárlega skort undanfarin ár, en samband hans við eigandann Evangelos Marinakis gæti reynst lykilatriði í því hversu lengi verkefnið fær að þróast.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Glugginn hefur verið rólegur hjá Forest, eða þannig. Félagið seldi Elliot Anderson og varð hann dýrasti leikmaður í sögu enska boltans. Núna verður fróðlegt að sjá hvernig félagið notar þann pening.
Komnir:
Gustavo Sá frá Famalicao - Óuppgefið kaupverð
Xaver Schlager frá RB Leipzig - Á frjálsri sölu
Farnir:
Elliot Anderson til Manchester City - 116 milljónir punda
Stefan Ortega til Olympiakos - Á frjálsri sölu
Jota Silva til Olympiakos - Á láni
Gustavo Sá til Olympiakos - Á láni
Angus Gunn til San Jose Earthquakes - Á frjálsri sölu
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Morgan Gibbs-White
Gibbs-White er hjarta Nottingham Forest og lykilmaður í sóknarleik liðsins. Enski miðjumaðurinn átti frábært síðasta tímabil með 18 mörk og sjö stoðsendingar í öllum keppnum og var langbesti leikmaður Forest. Liðið getur vart hugsað sér að missa hann og ef Forest ætlar sér rólegra tímabil verður Gibbs-White að halda áfram á sömu braut.
Gaman að fylgjast með: Igor Jesus
Brasilíski sóknarmaðurinn vakti verðskuldaða athygli á síðasta tímabili þegar hann lék stórt hlutverk í Evrópuævintýri Nottingham Forest. Jesus er öflugur í teignum, vinnur vel fyrir liðið og er með góða hreyfingu án bolta. Nú verður áhugavert að sjá hvort hann taki næsta skref undir stjórn Oliver Glasner, sem hefur áður náð því besta út úr sóknarmönnum sínum.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er sú að Forest taki stór skref undir stjórn Glasner og komi sér upp í efri hluta deildarinnar, verði í Evrópubaráttu. Versta niðurstaðan er að allt fari í skrúfuna, Glasner verði rekinn eftir nokkra leiki og Forest nái engum stöðugleika. Þá verður liðið í fallbaráttu.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Mynd: EPA