Fotbolti.net
07.08.26 - 09:46
Elvar Geir Magnússon

Breiðablik naumlega áfram gegn tíu leikmönnum Dinamo

Agla María var hetja Breiðabliks.

Agla María var hetja Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik 3 - 2 Dinamo-BSUPC
0-1 Anna Pilipenko ('14 )
1-1 Karitas Tómasdóttir ('53 )
1-2 Anna Pilipenko ('62 )
2-2 Agla María Albertsdóttir ('90 )
3-2 Agla María Albertsdóttir ('102 )
Rautt spjald: Hanna Siniauskaya, Dinamo-BSUPC ('16) Lestu um leikinn
Varamarkverði Breiðabliks skipt inn á sem útileikmanni
TENGT EFNI

Varamarkverði Breiðabliks skipt inn á sem útileikmanni

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Dinamo-BSUPC
Breiðablik vann torsóttan sigur gegn Dinamo-BSUPC frá Belarús í morgun. Eftir að hafa mistekist að komast áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar hefur Breiðablik náð að komast í 1. umferð Evrópubikarsins, sem er B-deild Evrópu. Þar tekur við hefðbundið útsláttareinvígi, heima og úti.

Anna Pilipenko kom Dinamo yfir í leiknum í morgun en aðeins tveimur mínútum seinna missti liðið leikmann af velli þegar Hanna Siniauskaya fékk rautt spjald fyrir hártog.

Karitas Tómasdóttir jafnaði með skalla eftir hornspyrnu í seinni hálfleik en tíu gegn ellefu komst Dinamo aftur yfir eftir slæm varnarmistök Blika. Pilipenko skoraði aftur.

En Agla María Albertsdóttir var hetja Breiðabliks. Hún jafnaði í 2-2 á bálok venjulegs leiktíma og skoraði svo sigurmarkið í framlengungunni. Agla María hafði einnig átt hornspyrnuna í fyrsta marki Blika svo hún skilaði frá sér tveimur mörkum og stoðsendingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.