Fotbolti.net
05.10.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Barcelona rústaði Real Madrid

Claudia Pina.

Claudia Pina.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Barcelona vann sannkallaðan stórsigur á Real Madrid í El Clásico í spænsku kvennadeildinni í gær.
Erkifjendurnir mættust í Katalóníu og Barcelona gerði út um leikinn strax í fyrri hálfleik. Heimakonur skoruðu fimm mörk fyrir hlé og leiddu því 5-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Claudia Pina var besti leikmaður vallarins og skoraði hvorki meira né minna en fjögur af mörkum Barcelona í fyrri hálfleik. Caroline Graham Hansen bætti svo við einu marki.

Barcelona hélt áfram að sækja eftir hlé og Ewa Pajor skoraði sjötta markið áður en Sydney Schertenleib innsiglaði 7-0 sigurinn í uppbótartíma.

Kvennalið þessara félaga hafa mæst 25 sinnum og Barcelona hefur nú unnið 24 af leikjunum. Real Madrid hefur aðeins einu sinni farið með sigur af hólmi.

Barcelona, sem er með magnað lið, situr á toppi spænsku deildarinnar með 18 stig eftir sigurinn en Real Madrid er í þriðja sæti með 13 stig.
Ewa Pajor.

Ewa Pajor.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.