05.10.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Benín kvartar undan aðstöðunni fyrir kveðjuleik Messi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínska fótboltasambandið liggur undir þungri gagnrýni þessa dagana og hefur fótboltasamband Benín kvartað undan aðstöðu landsliðsins í heimsókn sinni til landsins fyrir kveðjuleik Lionel Messi.

TENGT EFNI
Lentu í Argentínu fimm tímum fyrir leik og fengu skell
Argentína tekur á móti Benín í æfingalandsleik annað kvöld og eru gestirnir frá Afríku mættir til Argentínu en hafa lýst yfir óánægju með aðstæðurnar sem boðið er uppá.
Þetta atvik gerist aðeins nokkrum dögum eftir Búrkína Fasó fíaskóið, þar sem leikmenn A-landsliðsins neituðu að ferðast eftir að farþegaflugi til Argentínu var aflýst. Afríkuþjóðin mætti að lokum til leiks með lið sem var aðallega skipað leikmönnum sem eru 23 ára og yngri og tapaði 7-0. Ungir leikmenn Búrkína Fasó mættu til leiks aðeins nokkrum klukkustundum eftir að flugið lenti í Argentínu.
Fótboltasambandið í Benín er ósátt með yfirfullt og ódýrt farþegaflug sem var bókað fyrir landsliðið til að komast til Argentínu og kvartar einnig undan gistiaðstöðu. Hótelið sem var bókað fyrir landslið Benín er ekki með aðstöðu fyrir líkamsrækt og þá er ekkert rennandi vatn á einni hæðinni. Benín segir að eina jákvæða við hótelið, stór saunaklefi, virki ekki.
Þetta mál hefur vakið mikla athygli og þegar kafað er dýpra kemur í ljós að Argentína stundar að keppa æfingalandsleiki við smáþjóðir fyrir efnahagslegan ávinning.
Smærri þjóðir eru tilbúnar að leyfa Argentínu að hirða nánast allan gróða sem hlýst af viðureignunum gegn því að fá auglýsinguna sem því fylgir að spila við þessa risastóru fótboltaþjóð.
Argentínska fótboltasambandið virðist stundum ganga skrefinu lengra þegar kemur að því að hámarka eigin gróða og virðist spara verulegar upphæðir meðal annars við skipulag á flutningum fyrir andstæðinga sína og bókanir á gistingum.
Argentínska fótboltasambandið hefur legið undir rannsóknum vegna starfshátta sinna en Claudio Tapia, forseti sambandsins, hefur alltaf harðneitað því að nokkuð ólögmætt hafi átt sér stað undir hans leiðsögn.