05.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Besti þjálfari tímabilsins framlengir til 2029

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Dominic Ankers er búinn að framlengja samning sinn við Gróttu og verður áfram aðalþjálfari meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin, eða út keppnistímabilið 2029.
Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir Seltirninga enda hefur Grótta staðið sig feykilega vel undir leiðsögn Dominic, sem hefur starfað hjá félaginu frá 2021.
Hann starfaði meðal annars sem aðstoðarþjálfari hjá báðum meistaraflokkum félagsins og þjálfari yngri flokka karla og kvenna áður en hann tók við meistaraflokki kvenna í lok árs 2024.
Grótta náði sögulegum árangri á öðru tímabili Dominic, eða Dom eins og hann er kallaður, við stjórnvölinn. Liðið vann Lengjudeildina í sumar og tryggði sér sæti í Bestu deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Dom var valinn besti þjálfari Lengjudeildarinnar í ár og segist gríðarlega spenntur fyrir framtíð Gróttu í kvennaboltanum.
Ásamt áframhaldandi starfi sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna mun Dom hafa yfirumsjón með þróun leikmanna í yngri flokkum kvenna ásamt því að aðstoða við þjálfun í 3. flokki kvenna.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 18 | +26 | 41 |
| 2 | KR | 18 | +29 | 35 |
| 3 | Haukar | 18 | +18 | 33 |
| 4 | HK | 18 | +15 | 30 |
| 5 | Selfoss | 18 | +7 | 30 |
| 6 | FHL | 18 | +7 | 25 |
| 7 | ÍA | 18 | +5 | 24 |
| 8 | Keflavík | 18 | +5 | 21 |
| 9 | Völsungur | 18 | -14 | 15 |
| 10 | Tindastóll | 18 | -98 | 3 |