05.10.26 - 09:42
Elvar Geir Magnússon
Eistar missa út lykilmenn fyrir leikinn gegn Íslandi

Karl Hein er farinn til Þýskalands.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Markvörðurinn Karl Hein er kominn aftur til Þýskalands og mun ekki spila með Eistlandi gegn Íslandi í Þjóðadeildinni annað kvöld.
Hein varði mark Eista í 1-1 jafnteflinu á Laugardalsvelli en var á bekknum gegn Lúxemborg um helgina vegna meiðsla. Hann er nú kominn til félagsliðs síns, Werder Bremen, þar sem meiðslin verða skoðuð nánar.
Matvei Igonen, markvörður sænska liðsins Degerfors, varði mark Eista í 1-0 sigrinum gegn Lúxemborg og verður væntanlega aftur í markinu gegn Íslandi á orgun.

TENGT EFNI
Mikael í bann, Gylfi í myndatöku og lykilmenn laskaðir - Arnar hyggst bæta í hópinn
Auk Hein mun vararmaðurinn Karol Mets missa af leiknum á morgun þar sem hann tekur út leikbann. Miðjumaðurinn Martin Miller missti af leiknum gegn Lúxemborg vegna veikinda.
Eistar eru með fimm stig, tveimur stigum á eftir Íslandi sem er með sjö stig. Leikurinn á morgun fer fram á A. Le Coq Arena í Tallinn.