Fotbolti.net
05.10.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Man Utd bauð 100 milljónir fyrir Thomas Müller

Man Utd bauð 100 milljónir fyrir Thomas Müller
Canon

Mynd: EPA

Thomas Müller er 37 ára gamall lykilmaður Vancouver Whitecaps í MLS deildinni og á glæsilegan feril að baki.
Muller er goðsögn hjá FC Bayern og þýska landsliðinu enda lék hann meira en 750 keppnisleiki á 17 árum í München, auk þess að spila 131 landsleik fyrir Þýskaland. Hann er þriðji landsleikjahæsti leikmaður í sögu Þýskalands eftir Lothar Matthäus og Miroslav Klose.

Hann hefur aldrei verið mikið fyrir athygli í fjölmiðlum en viðurkennir að hafa íhugað að skipta til Manchester United fyrir áratugi síðan, þegar Rauðu djöflarnir lögðu fram 100 milljón evra tilboð í hann.

„Sumarið 2015 bauð United í kringum 100 milljónir evra en Bayern sagði nei, félagið vildi ekki selja mig. Ég íhugaði alvarlega að skipta um félag, samningstilboðið var mjög gott og ég hefði fengið tækifæri til að starfa aftur með læriföður mínum Louis van Gaal," segir Müller, en Van Gaal er þjálfarinn sem gaf honum fyrsta tækifærið með aðalliði FC Bayern.

„Ég var á besta aldri og leið eins og ég væri tilbúinn fyrir ensku úrvalsdeildina, en Bayern sagði nei. Ég var ánægður þegar Bayern hafnaði tilboðinu útaf því að það sagði mér hversu verðmætur ég var fyrir félagið. Stjórnin hafnaði 100 milljónum og sendi þannig skýr skilaboð um að ég væri lykilpartur af liðinu."
Man Utd bauð 100 milljónir fyrir Thomas Müller
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.