Fotbolti.net
05.10.26 - 18:56
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Mikael Anderson fær mikið lof frá Arnari

Mikael Neville Anderson

Mikael Neville Anderson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

Mikael Neville Anderson hefur fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu í leik Íslands og Búlgaríu á laugardaginn. Í viðtali við Sýn eftir leikinn fór Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, fögrum orðum um Mikael og hrósaði honum í hástert. Á blaðamannafundi í dag var Arnar spurður út í Mikael og hans landsliðsferil til þessa.

Líklegt byrjunarlið Íslands - Gylfi kemur inn
TENGT EFNI

Líklegt byrjunarlið Íslands - Gylfi kemur inn

„Þegar ég tók við liðinu þá var hann einn af fyrstu leikmönnunum sem ég talaði við og sagði bara hreint út að hans landsliðsferill hafi ekki alveg verið eins og hann sjálfur hefði vonast eftir af því að hann er búinn að vera sterkur leikmaður fyrir sín félagslið og leiðtogi og mögulega hefur hann verið að spila stöðu þar sem við höfum haft mikið af góðum leikmönnum. Ég fagna því, betra seint en aldrei, mér finnst hann vera að sýna núna hans gildi sem leikmaður og vægi innan hópsins og hvað hann mun bjóða okkur upp á. Hann er svo sannarlega týpa af leikmanni sem við þurfum á að halda. Fljótur og kraftmikill, með góðan leikskilning og með góða reynslu. Frammistaða hans núna í síðasta leik var að mínu mati ein af hans betri í bláu treyjunni þannig mér finnst einhvern veginn núna, miðað við hvað hann er búinn að upplifa sem leikmaður á sínum ferli að núna sé hans augnablik í að eigna sér ákveðna möguleika sem að allir sjá að er fyrir hendi í okkar liði.“

Eftir frammistöðuna gegn Búlgaríu spáum við á fótbolta.net að hann haldi sínu sæti í byrjunarliðinu á morgun. Liðið spilar gegn Eistlandi í Tallinn annað kvöld klukkan 18:45 á íslenskum tíma. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.