Fotbolti.net
05.10.26 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Gyökeres og Mamardashvili hetjurnar

Þjóðadeildin: Gyökeres og Mamardashvili hetjurnar
Canon

Mynd: EPA

Það var nóg um að vera í Þjóðadeildinni í dag þegar leikið var í B- og C-deildum mótsins.
Viktor Gyökeres hélt uppteknum hætti og skoraði eina mark leiksins er Svíþjóð lagði Rúmeníu að velli. Svíar voru talsvert sterkari aðilinn í Rúmeníu en tókst ekki að bæta fleiri mörkum við. Lærlingar Graham Potter eru með 10 stig í toppsæti riðilsins, tveimur stigum fyrir ofan Bosníu og Hersegóvínu. Rúmenar sitja stigalausir á botninum.

Bosnía lagði Pólland að velli í dag með vítaspyrnumarki frá Ivan Basic á 84. mínútu. Pólverjar voru sterkari aðilinn en tókst ekki að skora.

Bosnía er með 8 stig eftir 4 umferðir á meðan Pólland á 4 stig.

Dominik Szoboszlai lék þá í 87 mínútur er Ungverjaland hafði betur gegn Úkraínu, lokatölur 1-2. Úkraínumenn fengu bestu færin í nokkuð jöfnum slag en tókst ekki að nýta þau nægilega vel. Milos Kerkez var ekki með.

Norður-Írar eru á toppi riðilsins eftir markalaust jafntefli á heimavelli gegn Khvicha Kvaratskhelia, Giorgi Mamardashvili og félögum í landsliði Georgíu.

Norður-Írar voru sterkari aðilinn og fengu dæmda vítaspyrnu á lokakaflanum en Mamardashvili bjargaði Georgíumönnum, svo lokatölur urðu 0-0.

Norður-Írland er með 8 stig, einu stigi fyrir ofan Ungverjaland. Úkraína fylgir með 4 stig og rekur Georgía lestina með 2 stig.

Að lokum vann Kýpur heimaleik gegn Lettlandi í C-deildinni á meðan Svartfellingar gerðu jafntefli við Armena.

Rúmenía 0 - 1 Svíþjóð
0-1 Viktor Gyökeres ('13 )

Bosnía 1 - 0 Pólland
1-0 Ivan Basic ('84 , víti)

Norður-Írland 0 - 0 Georgía
0-0 Isaac Price ('84 , Misnotað víti)

Úkraína 1 - 2 Ungverjaland
0-1 Milan Toth ('52 )
1-1 Roman Yaremchuk ('83 )
1-2 Mark Csinger ('85 )

Kýpur 2 - 1 Lettland
0-1 Eduards Daskevics ('57 )
1-1 Giannis Kosti ('70 )
2-1 Marcus Edwards ('90 )

Svartfjallaland 0 - 0 Armenía
Rautt spjald: Stefan Loncar, Svartfjallaland ('86)
Þjóðadeildin: Gyökeres og Mamardashvili hetjurnar
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Gyökeres og Mamardashvili hetjurnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.