05.10.26 - 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Mögnuð endurkoma í Frakklandi - Ítalir unnu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld þegar Frakkland og Ítalía áttu heimaleiki.
Frakkar tóku á móti nágrönnum sínum frá Belgíu og náðu gestirnir forystunni í fyrri hálfleik þegar Dodi Lukébakio skoraði eftir undirbúning frá Roméo Lavia.
Staðan hélst 0-1 í nokkuð tíðindalitlum leik þar til Frakkar sýndu gæðin sín er tók að líða á seinni hálfleikinn. Désiré Doué og Lucas Da Cunha komu inn af bekknum og tengdu saman til að jafna metin á 77. mínútu og þá opnuðust flóðgáttirnar.
Rayan Cherki og Michael Olise, sem komu einnig inn af bekknum, tengdu til að ná forystunni á 81. mínútu og tóku gestirnir frá Belgíu að sækja. Við það opnaðist vörnin og refsaði Olise nágrönnum sínum með því að bæta tvennu við eftir stoðsendingar frá Doué, svo lokatölur urðu 4-1.
Olise og Doué var skipt inn af bekknum og gjörbreyttu þeir leiknum. Olise skoraði tvö og lagði eitt upp á meðan Doué skoraði eitt og gaf tvær stoðsendingar.
Tyrkir kíktu þá í heimsókn til Ítalíu og skoraði Gianluca Scamacca eina markið í tíðindalitlum fyrri hálfleik. Gestirnir frá Tyrklandi voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fundu ekki leið framhjá Gianluigi Donnarumma sem stóð sig vel.
Seinni hálfleikurinn bauð upp á mikla skemmtun þar sem bæði lið fengu góð færi og verðskulduðu Tyrkir að jafna metin þegar Aral Simsir skoraði á 61. mínútu. Ítalir tóku stjórn á leiknum í kjölfarið.
Riccardo Calafiori var nýkominn inn af bekknum og endurheimti forystuna með góðum skalla áður en Francesco Pio Esposito, sem kom einnig inn af bekknum, innsiglaði verðskuldaðan 3-1 sigur á lokamínútunum.
Frakkar tróna á toppi riðilsins með 10 stig eftir 4 umferðir, þremur stigum fyrir ofan Ítalíu sem situr í öðru sæti.
Belgar eru með 6 stig og sitja Tyrkir eftir án stiga í neðsta sæti.
Frakkland 4 - 1 Belgía
0-1 Dodi Lukebakio ('35 )
1-1 Desire Doue ('77 )
2-1 Rayan Cherki ('81 )
3-1 Michael Olise ('88 )
4-1 Michael Olise ('90 )
Ítalía 3 - 1 Tyrkland
1-0 Gianluca Scamacca ('26 )
1-1 Aral Simsir ('61 )
2-1 Riccardo Calafiori ('64 )
3-1 Pio Esposito ('87 )