Yfirferðin með Elízu Gígju: Óvænt tíðindi úr herbúðum Englands

Ella Toone er ekki í enska landsliðshópnum í komandi verkefni

Mynd: EPA

Chloe Kelly var einnig skilin eftir utan hóps

Mynd: EPA

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari belgíska landsliðsins

Mynd: EPA

Renée Slegers er í heitu sæti í Lundúnum

Mynd: EPA

Bunny Shaw skoraði fyrir City

Mynd: EPA

Alexia Putellas skipti í London City Lionesses í sumar og fer vel af stað

Mynd: EPA

Ewa Pajor skoraði fyrir Barcelona

Mynd: EPA

Lyon fara feikilega vel af stað

Mynd: EPA

Sarina Wiegman er óhrædd við að taka stórar ákvarðanir

Mynd: EPA

Ella Toone er ekki í enska landsliðshópnum í komandi verkefni

Mynd: EPA

Yfirferðin er nýr liður á fótbolta.net en hér verður fjallað um allt það helsta úr heimi fótbolta kvenna. Yfirferðin mun koma inn á síðuna í hádeginu alla mánudaga, fara yfir leiki vikunnar og allt það helsta sem hefur gengið á dagana á undan.
Ella Toone og Chloe Kelly utan hóps
Það styttist í landsleikjaglugga og hafa þjálfarar liðanna verið að tilkynna sína hópa. Það urðu tíðindi víða en þá sérstaklega þegar Sarina Wiegman, þjálfari enska liðsins, tilkynnti sinn hóp. Chloe Kelly og Ella Toone, sem hafa verið stór partur af frábærum árangri enska liðsins undanfarin ár, eru báðar utan hóps og segir Wiegman það einfaldlega vera vegna þess að þær séu ekki að spila jafn vel og þær geti. Lexi Potter, leikmaður Chelsea, fær tækifærið í þessum glugga en hún hefur ekki verið kölluð inn í A-landslið Englands áður og binda Englendingar miklar vonir við að hún geti orðið næsta stjarna liðsins.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari belgíska landsliðsins, valdi sinn hóp en þar ber helst að nefna að hin tvítuga Karlijn Helsen, liðsfélagi Andreu Rutar og Vigdísar Lilju hjá Anderlecht, fær pláss í hópnum í fyrsta sinn. Þær spila tvo leiki við Pólland í glugganum í umspili fyrir HM 2027 í Brasilíu.
Hræðileg byrjun Arsenal heldur áfram
Stórleikur umferðarinnar var viðureign Manchester City og Arsenal en City voru með fullt hús stiga fyrir leikinn á meðan Arsenal hefur farið illa af stað og hafði aðeins unnið einn leik. Eftir að hafa lent undir í tvígang tókst City konum að vinna leikinn og halda stöðu sinni á toppnum með fimm sigra í fimm leikjum. Vond byrjun Arsenal heldur áfram og er verið að fjalla um það í enskum miðlum að Renée Slegers, þjálfari liðsins, sitji í ansi heitu sæti. Vond byrjun Arsenal heldur áfram og er sífellt meira fjallað um það í enskum miðlum að Renée Slegers, þjálfari liðsins, sitji í ansi heitu sæti.
Natalia Arroyo hefur verið rekin frá Aston Villa eftir að liðið byrjaði tímabilið illa en þær voru án sigurs eftir fjóra leiki. Þær fengu Crystal Palace í heimsókn um helgina í leik sem endaði 1-1. Noëlle Maritz kom Villa yfir á 55. mínútu og Abbie Larkin jafnaði metin 20 mínútum seinna. Everton og Birmingham áttust við á sama tíma í leik þar sem Everton var sterkari aðilinn stærstan part leiksins. 2-1 voru lokatölur þar sem Ruby Mace skoraði bæði mörk Everton á meðan Océane Hurtré skoraði eina mark Birmingham liðsins sem bíða enn eftir sínum fyrsta sigri.
Manchester United og Liverpool áttust við í eina leik laugardagsins. Julia Olme kom United yfir eftir slæm mistök Khiara Keating markverði Liverpool en hún sendi boltann beint í fæturnar á Olme sem kláraði snyrtilega yfir hana. Liverpool konur gerðu hvað þær gátu til að jafna leikinn en allt kom fyrir ekki. Þá heldur slæm byrjun Charlton áfram en þær sitja á botni deildarinnar með núll stig eftir fimm umferðir. Þær steinláu gegn Brighton, 5-1, eftir að hafa komist yfir eftir þrjár mínútur með marki frá Cassandra Korhonen. Brighton voru sterkari aðilinn allan leikinn og sóttu sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
Eftir góða byrjun á tímabilinu fengu Tottenham 1-6 skell á móti London City Lionesses á heimavelli. Þær síðarnefndu fóru mikinn á félagsskipta markaðnum í sumar og hafa farið vel af stað. Alexia Putellas, einn nýjasti leikmaður liðsins, hefur spilað vel í upphafi þessa tímabils og hélt uppteknum hætti í þessum leik og skoraði tvö mörk. Chelsea eru enn taplausar eftir að hafa unnið feikilega öruggan 0-3 sigur á West Ham en þær voru miklu betra liðið allan leikinn á meðan West Ham áttu ekkert skot að marki í leiknum. Melvine Malard, Maika Hamano og Keira Walsh skoruðu mörk Chelsea en mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri.
Barcelona valtaði yfir Real Madrid
Barcelona hafa byrjað tímabilið vel og voru með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm umferðirnar með markatöluna 21-2. Þær fengu Real Madrid, sem voru í öðru sæti fyrir leikinn, í heimsókn um helgina. Ótrúlegir yfirburðir Barcelona liðsins skilaði þeim 7-0 sigri gegn liðinu sem á að vera næstbest í deildinni og eru þær því með fullt hús eftir fyrstu sex umferðirnar með markatöluna 28-2. Claudia Pina fór hamförum í leiknum en hún skoraði fernu í fyrri hálfleik. Caroline Graham Hansen, Ewa Pajor og Sydney Schertenleib skoruðu svo eitt mark hver. Það er ekki að sjá að Barcelona fái mikla samkeppni í deildinni í ár.
Madrid CFF fengu Athletic Club í heimsókn en bæði lið hafa verið að spila nokkuð vel í upphafi tímabils. Emilie Nautnes kom Madrid yfir rétt fyrir hálfleik en Bibiana Schulze-Solano jafnaði metin strax á 47. mínútu. Schulze-Solano var aftur á ferðinni á 62. mínútu þegar hún skoraði sitt annað mark í leiknum en Sakina Ouzraoui jafnaði á 73. mínútu og þar við sat. Madrid fer með þessu stigi í annað sætið, upp fyrir Real Madrid á markatölu á meðan Athletic Club situr í því fjórða.
Lyon heldur uppteknum hætti frá síðustu árum
Í Frakklandi hefur flest allt farið eftir bókinni í byrjun tímabils. Lyon, meistarar síðustu fimm ára, eru á toppnum með full hús stiga og markatöluna 27-3 eftir fjóra leiki. Þær unnu Toulouse 5-0 um helgina, sem er á botninum með eitt stig, og óhætt að segja að Lyon séu strax að hóta því að vinna þessa deild aftur. PSG er í öðru sæti, einnig með fullt hús, með örlítið hógværari markatölu, 8-1, og hafa verið að vinna góða sigra þar sem mótherjar þeirra fá varla færi. Þær unnu sannfærandi sigur á Fleury Merogis U.S. í gær þar sem þær voru betri aðilinn frá fyrstu mínútu. Léa-Laëtitia Morissaint, Rasheedat Ajibade og Jennifer Echegini komu þeim í 0-3 áður en Shama Chossenotte skoraði sárabótamark fyrir heimakonur úr einu af fjórum skotum þeirra í leiknum.

Chloe Kelly var einnig skilin eftir utan hóps

Mynd: EPA

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari belgíska landsliðsins

Mynd: EPA

Renée Slegers er í heitu sæti í Lundúnum

Mynd: EPA

Bunny Shaw skoraði fyrir City

Mynd: EPA

Alexia Putellas skipti í London City Lionesses í sumar og fer vel af stað

Mynd: EPA

Ewa Pajor skoraði fyrir Barcelona

Mynd: EPA

Lyon fara feikilega vel af stað

Mynd: EPA

Sarina Wiegman er óhrædd við að taka stórar ákvarðanir

Mynd: EPA
