Fotbolti.net
05.11.26 - 23:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu mark Orra sem var gagnrýninn á sjálfan sig

Sjáðu mark Orra sem var gagnrýninn á sjálfan sig
Canon

Mynd: EPA

Orri Steinn Óskarsson skoraði mark Real Sociedad þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Lyon í Evrópudeildinni í kvöld.

Hann skoraði markið með skalla í fyrri hálfleik. Hann var í viðtali eftir leikinn þar sem hann sagðist vera ósáttur með færanýtinguna hjá sér.
„Ég vil skora meira, ég klúðra mörgum færum. Ég er ekki ánægður með það en svona er að vera framherji. Meira að segja þeir bestu klúðra, Mbappe, Raphinha. Aðalatriðið er að ég er að skapa færi. Mér líður vel," sagði Orri.

Orri hefur skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum en aðeins þrír leikmenn úr spænsku deildinni hafa skorað fleiri. Það eru Kylian Mbappe (átta), Lamine Yamal (fimm) og Raphinha (fimm).

Sjáðu markið hjá Orra í kvöld hér fyrir neðan.




Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.