Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. desember 2020 22:32
Victor Pálsson
Einkunnir úr leik Chelsea og Leeds: Giroud bestur
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud var valinn maður leiksins af Sky Sports í kvöld þegar Chelsea vann 3-1 heimasigur á Leeds.

Giroud hefur átt frábæra undanfarna daga og skoraði fernu í 4-0 sigri á Sevilla á fimmtudaginn.

Frakkinn knái komst aftur á blað í kvöld og skoraði fyrsta mark Chelsea sem lenti 1-0 undir með marki frá Patrick Bamford.

Reece James, bakvörður Chelsea, fær einnig átta í einkunn líkt og Giroud. Kalvin Phillips og Raphinha fá einnig átta hjá Leeds.

Hér má sjá einkunnir Sky Sports.

Chelsea: Mendy (7), James (8), Silva (7), Zouma (7), Chilwell (7), Kante (7), Mount (7), Havertz (6), Werner (7), Ziyech (6), Giroud (8).

Varamenn: Pulisic (7), Kovacic (6), Abraham (6)

-----------------

Leeds: Meslier (7), Ayling (7), Koch (n/a), Cooper (7), Dallas (7), Phillips (8), Klich (7), Raphinha (8), Alioski (7), Harrison (6), Bamford (7).

Varamenn: Llorente (6), Poveda (6), Rodrigo (6)

Athugasemdir
banner
banner
banner