Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. desember 2020 21:01
Victor Pálsson
Holland: Ajax tapaði á heimavelli
Mynd: Getty Images
Ajax 1 - 2 Twente
0-1 Queensy Menig('22)
1-1 Dusan Tadic('59, víti)
1-2 Queensy Menig('84)

Ajax tapaði sínum öðrum deildarleik í Hollandi í kvöld er liðið spilaði við Twente í 11. umferð vetrarins.

Ajax hefur verið besta lið Hollands í nokkur góð ár og komu úrslit kvöldsins mörgum verulega á óvart.

Það var Twente sem kom sá og sigraði á heimavelli Ajax og hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.

Það er töluverð spenna á toppnum í Hollandi en Vitesse á toppsætið ef liðinu tekst að leggja Zwolle í kvöld þar sem staðan er 1-0 fyrir því fyrrnefnda.

Ajax væri þá einu stigi á eftir toppliðinu og fjórum stigum á undan PSV í þriðja sæti sem á leik til góða.

Athugasemdir
banner
banner