Fotbolti.net
05.12.20 - 17:54
Victor Pálsson

Holland: Kristófer kom við sögu í jafntefli

Holland: Kristófer kom við sögu í jafntefli
Canon

Mynd: Getty Images

Kristófer Ingi Kristinsson fékk nokkrar mínútur með varaliði PSV í dag sem spilaði við Roda í Hollandi.
Um var að ræða leik í næst efstu deild Hollands en Kristófer byrjaði viðureignina á varamannabekknum.

Tvö mörk voru skoruð í 1-1 jafntefli en Roda komst yfir á 13. mínútu en heimaliðið jafnaði aðeins þremur mínútum seinna.

Kristófer kom inná af bekknum á 79. mínútu og fékk því að spila rúmlega 11 mínútur með uppbótartíma.

Jong PSV situr í 14. sæti deildarinnar með 16 stig en Roda er fjórum sætum ofar með 21.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.