04.10.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
„Þetta eru lygar sem eiga að skapa smelli, hatur og sundrung“

Cristiano Ronaldo og Maniche voru liðsfélagar í portúgalska landsliðinu

Mynd: EPA

Fyrrum fótboltamaðurinn Maniche er allt annað en sáttur eftir að fölskum ummælum var dreift í máli Cristiano Ronaldo.

TENGT EFNI
Efnahagsráðherra blandar sér í Ronaldo-málið - „Þjóðinni afar verðmætur“
Ummælum sem eignuð voru Maniche var dreift á samfélagsmiðlum þar sem hann átti að hafa gagnrýnt Ronaldo harðlega. Hann var sagður telja að Ronaldo héldi aftur af portúgalska landsliðinu og kæmi í veg fyrir að aðrir leikmenn fengju að njóta sín sem stjörnur.
Maniche, sem var liðsfélagi Ronaldo í portúgalska landsliðinu hér árum áður, hefur nú hafnað því að hafa látið ummælin falla og segir þau uppspuna frá rótum.
„Þetta eru ekki mín orð. Ég sagði þetta aldrei, punktur. Einhver ákvað að búa þetta til, setja mynd af mér við það og dreifa því eins og það væri satt. Þetta er hvorki skoðun né blaðamennska. Þetta eru lygar sem eiga að skapa smelli, hatur og sundrung á kostnað landsliðsins þegar það þarf á öllu öðru að halda en þessu.“
„Ég segi mína skoðun í beinni, opinskátt og undir eigin nafni. Þeir sem vilja vita hvað mér finnst í raun ættu að hlusta á mig, ekki einhverja falsaðganga.“
„Ég hvet þá sem deildu þessu í góðri trú til að athuga heimildina áður en þeir deila efni. Lygi breiðist aðeins út ef einhver dreifir henni,“ sagði Maniche.
Mikið hefur verið rætt um portúgalska landsliðið eftir að Ronaldo yfirgaf hópinn. Jorge Jesus landsliðsþjálfari á að hafa brotið loforð sem hann gaf Ronaldo fyrir Þjóðadeildina og hafa bæði þjálfarinn og portúgalska fótboltasambandið verið gagnrýnd fyrir framkomuna við hann.
Þekkt nöfn úr portúgalska fótboltanum og víðar hafa kallað eftir því að sambandið nái sáttum við Ronaldo, stærstu stjörnu í sögu landsins.