Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 06. janúar 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Karólína Lea skrifar undir hjá Bayern
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karolína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er á leið til þýska félagsins Bayern Munchen. Fótbolti.net greindi fyrst frá áhuga Bayern fyrir áramót.

Mbl.is greindi frá því í dag að Karólína skrifi undir á næstu dögum og þá staðfesti Vísir að hún muni halda utan á morgun og skrifa undir þriggja og hálfs árs samning.

Bayern Munchen er á toppnum í þýsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla tólf leiki sína á tímabilinu og er með markatöluna 40:1!

Núverandi meistarar í Wolfsburg eru fimm stigum á eftir Bayern í augnablikinu. Sveindís Jane Jónsdóttir gekk til liðs við Wolfsburg í gær en hún mun vera á láni hjá Kristianstad í Svíþjóð á næsta ári.

Hin 19 ára gamla Karólína varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í sumar og kom inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins í undankeppni EM.

Karólína hefur skorað 32 mörk í 88 leikjum með Breiðabliki síðan hún kom til félagsins frá FH fyrir þremur árum.

Hún hefur á þeim tíma unnið tvo Íslandsmeistaratitla, bikarmeistaratitil og farið með liðinu í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner