Tristan Freyr Ingólfsson er að mæta aftur á völlinn eftir langa fjarveru en hann hefur samið við Gróttu í Lengjudeildinni. Hann gerði tveggja ára samning við félagið í gær.
Tristan, sem er fæddur árið 1999, er uppalinn hjá Val Reyðarfirði, Álftanesi og Stjörnunni.
Hann hefur spilað sem vinstri bakvörður og sem sóknarmaður, en lent í erfiðum meiðslum á síðustu árum og þrisvar sinnum slitið krossband í hné.
Tristan yfirgaf Stjörnuna í lok árs og hefur nú samið um að leika með Gróttu næstu tvö árin.
„Ég er virkilega spenntur fyrir komandi tímum hjá Gróttu og þakklátur fyrir tækifærið að fá að snúa loksins aftur út á völl,“ sagði Tristan við undirskrift.
Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu, er ánægður með að hafa landað þessum öfluga leikmanni og mun hjálpa honum að koma ferlinum aftur af stað.
„Fyrstu vikur Tristans í Gróttu hafa sýnt hvaða karakter hann hefur að geyma. Hann leggur hart að sér á æfingum og hefur mikinn eldmóð fyrir fótboltanum þrátt fyrir skakkaföll síðustu árin. Við munum styðja þétt við bakið á Tristan, hjálpa honum að fara af stað með réttum hætti og vonandi sjá hann blómstra í Gróttutreyjunni í sumar,“ sagði Magnús Örn um Tristan.
Grótta hafnaði í öðru sæti í 2. deild á síðasta ári og mun því leika í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir



