Hansi Flick, stjóri Bayern Munchen, útilokar ekki að Erling Haaland muni einn daginn spila fyrir liðið en hann er einn eftirsóttasti leikmaður heims.
Haaland spilar með Borussia Dortmund í dag og skoraði tvennu fyrir liðið gegn Bayern í 4-2 tapi í kvöld.
Mörg lið horfa til Norðmannsins sem hefur skorað 29 mörk í 28 leikjum fyrir Dortmund á leiktíðinni.
Flick segir að ýmislegt geti gerst á lífsleiðinni og útilokar alls ekki að Haaland gæti spilað á Allianz Arena.
„Það er mjög margt sem er mögulegt í lífinu, það er ekki hægt að útiloka neitt," sagði Flick.
„Við erum þó langt frá því. Hann er með langtíma samning við Dortmund og er möguleiki fyrir fjölmörg önnur lið."
Athugasemdir