Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr
Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður
Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net
Niðurtalningin - Mikil spenna eftir stór leikmannakaup
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar
Útvarpsþátturinn - Máni og Jökull heimsækja Tómas
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna
   mán 06. mars 2023 15:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enski boltinn - Vandræðaleg uppgjöf
Mynd: EPA
Liverpool vann sögulegan risasigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Til þess að ræða leikinn og aðra leiki helgarinnar fékk Sæbjörn Steinke Framarana Óskar Smára Haraldsson og Guðmund Magnússon.

Af hverju vann Liverpool 7-0? Rætt um varnarmanninn Antony, fyrirliðann Bruno Fernandes, fluggírinn hjá Liverpool og uppgjöf gestanna á Anfield í gær.

Daginn áður vann Arsenal frábæran endurkomusigur gegn Bournemouth og er meistarabragur á Skyttunum. Manchester City heldur þó áfram pressu og er mikil barátta um meistaratitilinn milli þessara tveggja liða. Chelsea vann þá lífsnauðsynlegan sigur en eftir sigur gegn einmitt Chelsea var vikan hjá grönnunum í Tottenham hræðileg í einu orði sagt.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér að ofan eða í öllum hlaðvarpsveitum.
Slapp
banner
banner