15.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Yfirgefur argentínska landsliðið til að þjálfa í Evrópu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Walter Samuel hefur tilkynnt argentínska landsliðinu að hann muni hætta störfum þar til að flytja til Evrópu.

TENGT EFNI
Cristian Chivu ráðinn þjálfari Inter (Staðfest)
Samuel hefur verið aðstoðarþjálfari argentínska landsliðsins á undanförnum árum og neitaði tilboði frá Inter um að taka við sem aðstoðarþjálfari Cristian Chivu í fyrrasumar.
Samuel og Chivu voru lengi vel samherjar hjá Inter á leikmannaferlinum og unnu fræga þrennu tímabilið 2009-2010 þegar þeir léku saman í ógnarsterkri varnarlínu undir stjórn José Mourinho.
Samuel, sem lék meðal annars fyrir AS Roma og Real Madrid á ferlinum, er 48 ára gamall og er kominn með æðstu þjálfaragráðu sem býðst í fótboltaheiminum.
Hann lék 56 landsleiki fyrir Argentínu en tókst ekki að vinna merkan titil.