15.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jafnaði leikjamet Kenny Dalglish - Skammt frá markametinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Andy Robertson lék allan leikinn í 2-1 sigri Skotlands gegn Norður-Makedóníu í Þjóðadeildinni fyrir helgi og jafnaði þar með leikjamet Kenny Dalglish.

TENGT EFNI
Robertson jafnaði met Darren Fletcher
Robertson er búinn að spila 102 landsleiki og getur bætt leikjametið þegar Skotar heimsækja Sviss annað kvöld.
Kenny Dalglish á ekki bara leikjamet skoska landsliðsins heldur líka markametið, sem er í hættu eftir að John McGinn skoraði bæði mörk Skota gegn Makedónum.
32 ára McGinn er kominn með 24 mörk í 94 landsleikjum og er aðeins 6 mörkum frá því að jafna markametið, sem Dalglish deilir með Denis Law eftir að þeir skoruðu 30 mörk á haus fyrir þjóð sína.
„Þetta er eitthvað sem ég hef haft í huga að reyna að bæta markametið," sagði McGinn eftir tvennuna. „Þetta er bara jákvætt. Ef ég held áfram að klifra upp þennan markalista þá þýðir það að okkur er að ganga vel sem lið."