15.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimir: Áttum að minnsta kosti skilið jafntefli

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, var vonsvikinn eftir 1-0 tap gegn Austurríki í B-deild Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Heimir talar um sársaukafullt tap en Írar taka á móti Kósovó í lokaumferð riðlakeppninnar og geta náð 2. sætinu með sigri. Annað sætið gefur þátttökurétt í umspilsleik um sæti í A-deildinni á næstu leiktíð.
Framherjinn hávaxni Sasa Kalajdzic skoraði eina mark leiksins þegar hann potaði boltanum í netið eftir hornspyrnu. Hann tryggði þar með toppsæti Austurríkis, sem mun leika í A-deildinni næst.
Austurríkismenn voru sterkari aðilinn en Írar fengu sín færi til að skora. Chiedozie Ogbene fékk gott færi undir lokin til að bjarga stigi og var Heimir svekktur að hafa ekki fengið neitt úr leiknum.
„Það var sársaukafullt að fá ekki neitt úr þessum leik. Mér fannst við eiga skilið að ná í að minnsta kosti jafntefli, en við vildum helst sigra til að berjast um toppsæti riðilsins. Við komum okkur í mikið af góðum stöðum og fengum nokkur góð færi, en þetta var ekki okkar dagur fyrir framan markið," sagði Heimir.
„Strákarnir lögðu allt í sölurnar og ég get ekki kennt framlaginu þeirra um. Liðið er að taka framförum en það er ekki nóg, við viljum vinna leiki. Það munaði mjög litlu á liðunum í dag, þeir skoruðu eina mark leiksins eftir hornspyrnu þar sem þeir fengu tvær eða þrjár snertingar áður en boltinn endaði í netinu. Leikmenn verða að halda einbeitingu allan leikinn."
Heimir er spenntur fyrir lokaleiknum gegn Kósovó, sem vann 1-0 þegar liðin mættust í fyrri leiknum ytra.
„Leikurinn gegn Kósovó var alltaf að fara að vera mikilvægari leikurinn í þessum glugga, en við vorum bara svo nálægt því að vinna í Austurríki og þá gætum við unnið riðilinn núna. En svona er fótboltinn á þessu gæðastigi, það eru smáatriðin sem ráða úrslitum."