Breiðablik 7 - 3 Víkingur R.
0-1 Freyja Stefánsdóttir ('11)
1-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('34)
2-1 Barbára Sól Gísladóttir ('44)
3-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('49)
3-2 Katelyn Duong, sjálfsmark ('54)
4-2 Líf Joostdóttir van Bemmel ('59)
4-3 Arna Ísold Stefánsdóttir ('67)
5-3 Agla María Albertsdóttir ('71)
6-3 Líf Joostdóttir van Bemmel ('81)
7-3 Sunna Rún Sigurðardóttir ('86)
0-1 Freyja Stefánsdóttir ('11)
1-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('34)
2-1 Barbára Sól Gísladóttir ('44)
3-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('49)
3-2 Katelyn Duong, sjálfsmark ('54)
4-2 Líf Joostdóttir van Bemmel ('59)
4-3 Arna Ísold Stefánsdóttir ('67)
5-3 Agla María Albertsdóttir ('71)
6-3 Líf Joostdóttir van Bemmel ('81)
7-3 Sunna Rún Sigurðardóttir ('86)
Breiðablik og Víkingur R. tókust á í eina leik kvöldsins í A-deild Lengjubikars kvenna og úr varð mikil markaveisla.
Freyja Stefánsdóttir náði forystunni fyrir Víkinga snemma leiks en heimakonur snéru stöðunni við fyrir leikhlé, með mörkum frá Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur og Barbáru Sól Gísladóttur.
Hrafnhildur Ása tvöfaldaði forystu blika í upphafi síðari hálfleiks en Víkingar voru ekki á því að gefast upp. Liðin skiptust á því að skora næstu mörk svo staðan var orðin 4-3 eftir 67. mínútur en það var þá sem Blikar skiptu um gír og kláruðu viðureignina.
Agla María Albertsdóttir, Líf Joostdóttir van Bemmel og Sunna Rún Sigurðardóttir innsigluðu 7-3 sigur með mörkum á lokakaflanum. Líf og Hrafnhildur enduðu atkvæðamestar með sitthvora tvennuna.
Breiðablik er með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar en liðið tapaði gegn Val í fyrstu umferð.
Víkingur er með sex stig eftir þrjár umferðir þar sem liðið hafði sigrað tvo leiki í röð fyrir tap kvöldsins.
Athugasemdir

