Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 06. maí 2021 10:10
Elvar Geir Magnússon
Konate á leið til Liverpool - City hefur áhuga á Rice
Powerade
Miðvörðurinn Ibrahima Konate.
Miðvörðurinn Ibrahima Konate.
Mynd: Getty Images
Brandon Williams.
Brandon Williams.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Sidnei Tavares.
Sidnei Tavares.
Mynd: EPA
Rice, Konate, Salah, Conte, Lamela, Mata, Williams, Onuachu og fleiri í safaríkum slúðurpakka dagsins. BBC tók saman.

Liverpool hefur náð samkomulagi við franska varnarmanninn Ibrahima Konate (21) hjá RB Leipzig og mun hann gera fimm ára samning við Englandsmeistarana. (TalkSport)

Egypski framherjinn Mohamed Salah (28) vill yfirgefa Liverpool og Paris Saint-Germain undirbýr tilboð í kappann ef Kylian Mbappe (22) fer í sumar. (Le Parisien)



Manchester City mun skoða það að kaupa Declan Rice (22) frá West Ham ef Fernandinho (36) yfirgefur félagið þegar samningur hans rennur út í sumar. (Times)

PSG vill efla varnarleik sinn og hefur áhuga á Serge Aurier (28), hægri bakverði Tottenham. (RMC Sport)

West Ham, Chelsea og fleiri félög hafa áhuga á enska sóknarmanninum Ivan Toney (25) hjá Brentford. Hann er með 35 milljóna punda verðmiða og hefur skorað 30 mörk í Championship-deildinni á tímabilinu. (Sun)

Umboðsmaður Jurgen Klopp (53) segir alveg ljóst að hann verði áfram hjá félaginu, sama þó liðið nái ekki Meistaradeildarsæti. (Sky Sport Germany)

Norwich City verður í ensku úrvalsdeildinni á næstu tímabili en félagið er í baráttu við Southampton og West Ham um að fá bakvörðinn Brandon Williams (20) lánaðan í sumar. (Sun)

Ef Wayne Rooney nær að halda Derby County í Championship-deildinni mun hann reyna að fá írska varnarmanninn Shane Duffy (29) frá Brighton. (Football Insider)

Tottenham hefur rætt við Antonio Conte (51), stjóra Inter, um að taka við liðinu. Conte gerði Inter að Ítalíumeistara. (Corriere dello Sport)

Jose Mourinho gæti reynt að fá argentínska miðjumanninn Erik Lamela (29) og brasilíska framherjann Lucas Moura (28) frá Tottenham til Roma. (Football.London)

Mourinho hefur áhuga á að sækja Eric Dier (27) og Pierre-Emile Höjbjerg (25) frá Tottenham. Þá vill hann fá Juan Mata (33) frá Manchester United. (Corriere dello Sport)

West Ham og Crystal Palace íhuga að gera tilboð í kóreska sóknarmanninn Hwang Hee-chan (25) hjá RB Leipzig. (Telegraph)

Andy Carroll (32) mun líklega yfirgefa Newcastle í sumar en hann er pirraður yfir litlum spiltíma. (Times)

Líkamlegt ástand brasilíska framherjans Wesley (24) sem kom aftur nýlega eftir næstum sextán mánuði frá vegna alvarlegra hnémeiðsla mun ráða því hvort Aston Villa sæki nýjan sóknarmann í sumar. (Express & Star)

Úlfarnir eru bjartsýnir á að fá Carlos Vinicius (26) frá Benfica en Tottenham hyggst ekki kaupa sóknarmanninn. Vinicius er á láni hjá Spurs. Portúgalski varnarmaðurinn Ruben Vinagre (22) gæti farið til Benfica sem hluti af samningi Wolves. (Football Insider)

Nígeríski sóknarmaðurinn Paul Onuachu (26) hefur áhuga á að fara til Arsenal. Hann hefur skorað 29 mörk í 33 deildarleikjum fyrir Genk í Belgíu á tímabilinu. (Voetbal Belgie)

Benfica og RB Leipzig hafa áhuga á Sidnei Tavares (19), miðjumanni Leicester City. Leicester vill halda Portúgalanum og hefur boðið honum nýjan samning. (Football Insider)

Leeds United vill fá Ozan Tufan (26), miðjumann Fenerbahce. (Fotomac)

Leeds ætlar aftur að lána pólska miðjumanninn Mateusz Bogusz (19) á næsta tímabili. Legia Varsjá vill fá hann. (WP SportoweFakty)

Julian Nagelsmann vill fá marokkóska hægri bakvörðinn Achraf Hakimi (22) til Bayern München frá Inter. Hakimi hefur verið orðaður við Arsneal. (Express)

Lazio íhugar að bjóða Juan Mata (33), leikmanni Manchester United, tveggja ára samning. (Il Tempo)

Atletico Madrid vill kaupa argentínska miðjumanninn Facundo Farias (18) sem er með 9 milljóna punda riftunarákvæði í samningi við argentínska félagið CA Colon. (AS)
Athugasemdir
banner
banner
banner