Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. maí 2022 16:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Þórður í KR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru tíðindi úr Bestu deildinni! Aron Þórður Albertsson er genginn í raðir KR frá Fram.

Aron er 25 ára miðjumaður og gerir hann þriggja ára samning við KR.

Aron er uppalinn í Breiðabliki en hefur í meistaraflokki leikið með Fram, Þrótti og HK.

Í fyrra lék hann nítján leiki og skoraði eitt mark þegar Fram fór ósigrað upp úr Lengjudeildinni. Aron hefur ekki spilað síðan í febrúar.

Sjá einnig:
Þrír byrjunarliðsmenn KR tæpir fyrir leikinn á morgun - „Alltaf smá púsluspil"
Athugasemdir
banner
banner