Fotbolti.net
06.05.22 - 23:29
Ingi Snær Karlsson

Jón Steindór: Heilt yfir átti HK þennan sigur skilið

Auglýsing
Jón Steindór, þjálfari Fylkis.

Jón Steindór, þjálfari Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Mér fannst HK klárlega sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Við ætluðum að liggja aðeins dýpra til að byrja með. Við stigum eiginlega ekki upp nógu snemma og leyfðum þeim að keyra á okkur," sagði Jón Steindór Þorsteinsson, þjálfari Fylkis, eftir tap liðsins á móti HK í kvöld.
„Mér fannst allt annar bragur á okkar leik í seinni hálfleik. Mér fannst við vera sterkari aðilinn seinasta hálftímann... heilt yfir átti HK þennan sigur svo sem skilið."

Fylki er spáð fimmta sæti í Lengjudeildinni í ár.

„Spá er alltaf bara spá og ég skil spána að mörgu leyti til. Við misstum marga leikmenn, við erum búnar að vera með mjög unga leikmenn í allan vetur sem hafa staðið sig virkilega vel. Við eigum inni svolítið af mannskap."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.