06.06.05 - 10:44
Magnús Már Einarsson
Fram lánar Jón Orra til Aftureldingar (Staðfest)

Jón Orri.

Mynd: fram.is

Jón Orri.

Mynd: fram.is
Gengið hefur verið frá því að Jón Orri Ólafsson verði lánaður frá Fram til 2.deildarliðs Aftureldingar út sumarið. Jón Orri sem var lykilmaður í 2.flokki Fram í fyrra hefur ekki tekist að vinna sér sæti í meistaraflokki liðsins á tímabilinu og hefur hann því ákveðið að fara til Aftureldingar til að afla sér reynslu.
Afturelding er með 1 stig í 2.deildinni eftir 3 leiki en liðið mætir Njarðvík á útivelli í kvöld.
