Fotbolti.net
06.06.14 - 22:31
Elvar Geir Magnússon

Þorvaldur Örlygs: Seinni hálfleikur var okkar eign

Auglýsing
Þorvaldur Örlygs: Seinni hálfleikur var okkar eign
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við byrjuðum frekar rólega en seinni hálfleikur var okkar eign. Þeir voru betri í fyrri en við töluvert betri í seinni,\" sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, eftir 2-0 tap gegn ÍA í 1. deildinni í kvöld. Þetta var fyrsta tap HK.
„Það er svolítið sérstakt að á síðustu 20 mínútunum voru flestir þeirra leikmanna búnir. Mér fannst við þá rúlla boltanum betur. Við erum lið sem er að læra.\"

Stefán Ari Björnsson, strákur fæddur 1995, stóð í marki HK í kvöld þar sem fyrirliðinn Beitir Ólafsson er meiddur.

„Það er slæmt fyrir öll lið að missa góða leikmenn í meiðsli. Stefán kom inn og stóð sig virkilega vel. Það er aldrei að vita nema hann þurfi að spila næsta leik eða næstu leiki. Það er góð reynsla fyrir hann.\"

Þorvaldi fannst dómgæslan ekki góð í leiknum en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.