Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
   þri 06. júní 2017 22:00
Mist Rúnarsdóttir
Dublin
Sara Björk: Gott að fá þennan leik fyrir EM
Kvenaboltinn
Sara Björk á æfingu í dag
Sara Björk á æfingu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var kominn tími til að hittast aftur. Sérstaklega eftir síðasta leik og við erum tilbúnar í að takast á við næsta verkefni."

„Þær eru harðar af sér og rosalega sterkar í föstum leikatriðum. Ég held það sé rosalega gott fyrir okkur að fá þennan leik fyrir EM,“
sagði landsliðskonan og Þýskalandsmeistarinn Sara Björk Gunnarsdóttir í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag. En hún býr sig undir vináttuleik gegn Írlandi ásamt öðrum leikmönnum íslenska landsliðsins.

Sara Björk mætir full sjálfstrausts til leiks eftir frábært tímabil í Þýskalandi.

„Ég er í toppstandi eftir hörkutímabil með Wolfsburg. Mér líður bara vel. Ég er orðin aðeins þreytt eftir langt tímabil en það er nóg eftir á tanknum.“

„Það gekk allt upp. Við náðum tveimur titlum í Wolfsburg. Auðvitað vildum við ná þrennunni en það verður bara að bíða til næsta árs. En ég er full sjálfstrausts og í góðu standi og rosalega spennt fyrir sumrinu,“
sagði Sara Björk sem lætur vel af þýsku deildinni.

„Deildin er rosalega sterk og við erum búnar að spila ótrúlega mikið af góðum og erfiðum leikjum. Við settum okkur það markmið að vinna deildina og bikarinn og auðvitað meistaradeildina líka. En á endanum þá komum við með tvo titla og erum gríðarlega sátt. Þá sérstaklega ég á mínu fyrsta tímabili.“

Það rataði í fréttirnar fyrir stuttu að kvennalið Wolfsburg hafi ekki fengið að fagna titlunum tveimur með formlegum hætti þar sem að karlalið félagsins stóð á sama tíma í mikilli fallbaráttu og stjórn félagsins vildi ekki að fögnuður kvennanna skyggði á undirbúning karlaliðsins í umspilsleik um sæti sitt í deildinni.

„Þeir voru í basli við að reyna að halda sér í deildinni og það var hætt við formlega athöfn sem bærinn átti að halda til heiðurs okkur vegna gengi karlaliðsins. Það var rosalega mikil synd að geta ekki fagnað því að stelpurnar í klúbbnum hafa unnið tvo titla fyrir liðið. En við stelpurnar héldum bara okkar eigin fögnuð.“

„Fyrir mér er þetta ótrúlega svekkjandi. Ég er að spila í toppklúbbi og það er mikil synd hversu lítil virðing er borin fyrir sigursælu kvennaliðinu og hætt sé við fögnuðinn. En ætla ekki að vera að kommenta of mikið á það.“


Þrátt fyrir að vera ekki sátt við þessa ákvörðun stjórnarinnar er Sara Björk ánægð hjá liðinu og í þýsku deildinni. Hún segir að áhugi á knattspyrnu kvenna sé mikill í Þýskalandi og fari vaxandi.

„Það er gríðarlega mikill áhugi. Ég finn það komandi frá Svíþjóð að það er ennþá meiri áhugi í Þýskalandi og ég held að hann sé alltaf að verða meiri og meiri. Ég held að þetta sé klárlega ein besta deild í heiminum og það segi ég af því að hún er svo ótrúlega jöfn og við getum tapað stigum gegn hverju einasta liði í deildinni. Liðið sem við spilum við í bikarúrslitum lenti í 7.sæti í deildinni og það segir kannski svolítið mikið um deildina. Öll lið í Þýskalandi geta hlaupið í 95 plús. Það eru allir leikmenn í toppstandi og mikið af landsliðsleikmönnum.“

Nánar er rætt við Söru Björk í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner