Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Cherki og Mbappe ósáttir við franska fótboltasambandið
Mbappe er ekki sáttur við franska sambandið
Mbappe er ekki sáttur við franska sambandið
Mynd: EPA
Rayan Cherki og Kylian Mbappe, leikmenn franska landsliðsins, eru ósáttir við franska fótboltasambandið eftir að andlit þeirra birtust í auglýsingu veðmálafyrirtækisins BetClic.

Cherki, Mbappe, Michael Olise, Desiré Doué og Ousmane Dembélé voru allir boðaðir í myndatöku á vegum franska sambandsins en var ekki tilkynnt af hverju.

Franska veðmálafyrirtækið BetClic birti í kjölfarið auglýsingu með myndum af leikmönnunum og brá þeim Cherki og Mbappe í brún, enda höfðu þeir ekki fengið neinar upplýsingar um að myndirnar væru fyrir fyrirtækið.

Cherki og Mbappe voru ósáttir við sambandið enda hafa þeir engan áhuga á að auglýsa veðmálafyrirtæki.

Í september 2023 náði franska knattspyrnusambandið samkomulagi við leikmenn um ímyndarrétt þeirra eftir langar viðræður en ljóst er að taka þarf upp nýjar viðræður eftir heimsmeistaramótið vegna þessa útspils sambandsins.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner