Sara Björk Gunnarsdóttir er komin aftur heim eftir farsælan atvinnumannaferil. Hún gekk í raðir uppeldisfélagsins Hauka í gær.
Sara Björk gekk í raðir Breiðabliks frá Haukum árið 2008 en atvinnumannaferillinn hófst árið 2011. Hún var spurð í viðtali við Fótbolta.net hvort það hafi komið til greina að fara til Breiðabliks.
Sara Björk gekk í raðir Breiðabliks frá Haukum árið 2008 en atvinnumannaferillinn hófst árið 2011. Hún var spurð í viðtali við Fótbolta.net hvort það hafi komið til greina að fara til Breiðabliks.
„Þeir heyrðu í mér og við töluðum eitthvað saman en það fór ekkert rosalega langt. Það var allltaf Haukar á endanum," sagði Sara Björk.
„Þetta hús gerir rosalega mikið fyrir félagið. Gengi liðsins að undanförnu og fólkið í kringum þetta er eitthvað sem er gaman að koma inn í á þessum tímapunkti."



