Fotbolti.net
14.10.26 - 11:31
Elvar Geir Magnússon

Klefinn hjá Man Utd deilir skoðun Martínez

Jason Wilcox yfirmaður fótboltamála.

Jason Wilcox yfirmaður fótboltamála.

Canon

Mynd: EPA

Guardian greinir frá því að flestir í leikmannahópi Manchester United deili þeirri skoðun Lisandro Martínez að Jason Wilcox sé ekki að standa sig í starfi yfirmanns fótboltamála.

Martínez fór mikinn í viðtali eftir 2-0 tap gegn Atletico Madrid og gagnrýndi félagið í leikmannálum. Hann segir að stjórnendur félagsins beri ábyrgð á því að leikmannahópnum skorti breidd.

Þessi gagnrýni er sögð endurspegla álit liðsins en Manchester United hefur farið svakalega illa af stað á tímabilinu og sæti Michael Carrick er sjóðandi heitt.

Martínez dró ekkert undan en ummæli hans eru einnig talin tilraun til að vera seldur frá félaginu en samningur hans rennur út næsta sumar.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

„Ég býst við meiri (fjárfestingu). Það er 100 prósent og ég býst við meira frá tæknilegum stjórnanda félagsins (Jason Wilcox). Ég verð að vera hreinskilinn að við leikmenn þurfum að gera meira, en það er líka mikilvægt að byggja sterkan hóp svo við séum tilbúnir fyrir svona kvöld,“ sagði Martínez meðal annars.
Lisandro Martínez.

Lisandro Martínez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.