14.10.26 - 14:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emil Atla eftirsóttur

Emil Atlason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emil Atlason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Emil Atlason, sóknarmaður Stjörnunnar, er eftirsóttur fyrir næsta keppnistímabil.
Samningur Emils við Stjörnuna er að renna út eftir rúman mánuð og í íslenska slúðurpakkanum hér á Fótbolta.net kom fram að Víkingur, Fram og KR - þrjú efstu lið Bestu deildarinnar - hefðu áhuga á honum.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
„Hann er á rosalegum samning þarna skilst mér," sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu þegar rætt var um Emil.
„Hann er á flottum díl. Framlengdi hann ekki eftir að hann varð markahæstur fyrir tveimur árum? Ég held það," sagði Kári Snorrason, en Emil, sem er fæddur 1993, hefur skorað tíu mörk í 20 leikjum í Bestu deildinni í sumar.