14.10.26 - 13:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal segir upp 60 manns

Leikmenn Arsenal fagna marki.

Mynd: EPA

Leikmenn Arsenal fagna marki.

Mynd: EPA
Arsenal hefur tilkynnt starfsfólki sínu að fyrirhugað sé að segja upp 60 starfsmönnum hjá félaginu, þrátt fyrir mettekjur á síðasta fjárhagsári og góðan árangur innan vallar. Fyrirhugað er að fækka störfum í nokkrum deildum félagsins en málið er enn í samráðsferli og gæti tekið breytingum.
Ekki verður gripið til niðurskurðar meðal þjálfarateyma félagsins eða starfsfólks sem sinnir afreksstarfi hjá karla- og kvennaliðunum. Starfsemi tengd samfélagsverkefnum, Arsenal Foundation, öryggismálum og kvennaliðinu verður einnig undanskilin.
Í febrúar greindi Arsenal frá því að tekjur félagsins hefðu náð 691 milljón punda á fjárhagsárinu 2024-25, sem er nýtt met hjá félaginu.
Tilkynningin kemur skömmu eftir að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, framlengdi samning sinn til ársins 2030. Samningurinn er sagður gera hann að launahæsta þjálfara ensku úrvalsdeildarinnar með um 20 milljónir punda í árslaun.