Fotbolti.net
14.10.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sagður efstur á óskalistanum ef Carrick verður rekinn

Fabian Hurzeler.

Fabian Hurzeler.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, er sagður efstur á óskalista Manchester United ef félagið ákveður að skipta um stjóra á næstunni. Michael Carrick hefur verið undir vaxandi pressu eftir slæma byrjun á tímabilinu.
Samkvæmt The Sun fylgist stjórn United grannt með stöðu mála og lítur á Hürzeler sem helsta kostinn ef ákveðið verður að láta Carrick fara. United hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og situr í 13. sæti deildarinnar.

Carrick skrifaði undir samning við Man Utd síðastliðið sumar eftir að hafa stýrt liðinu í þriðja sæti ensku deildarinnar á síðasta tímabili. Það tryggði United sæti í Meistaradeild Evrópu, en frammistaðan í upphafi þessa tímabils hefur ekki verið í samræmi við væntingar.

Carrick gæti fengið frekari tíma til að snúa genginu við, en úrslitin í október og byrjun nóvember gætu reynst mikilvæg fyrir framtíð hans.

Hürzeler, sem er 33 ára, framlengdi samning sinn við Brighton um þrjú ár í júní. Félagið væri því í sterkri stöðu til að krefjast ágætis upphæðar ef United myndi reyna að fá Þjóðverjann til starfa. Tony Bloom, eigandi Brighton, sagði í síðasta mánuði að félagið væri undirbúið fyrir allar aðstæður ef önnur félög sýndu Hürzeler áhuga.

Hürzeler tók við Brighton árið 2024 og hefur stýrt liðinu í áttundu sæti tvisvar í röð í ensku úrvalsdeildinni. Brighton hefur auk þess unnið fjóra af sex leikjum sínum gegn Manchester United undir hans stjórn.
Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.