14.10.26 - 14:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Má fara fyrir 100 milljónir punda

Alex Scott fagnar marki með Bournemouth.

Mynd: EPA

Alex Scott fagnar marki með Bournemouth.

Mynd: EPA
Bournemouth er tilbúið að selja enska miðjumanninn Alex Scott í janúar ef rétta tilboðið berst. Samkvæmt heimildum BBC er félagið reiðubúið að samþykkja tilboð upp á um 100 milljónir punda.
Eftir lokaviðræður við fulltrúa leikmannsins hefur Bournemouth ákveðið að íhuga sölu ef verðmati félagsins verður mætt. Staða liðsins í ensku úrvalsdeildinni mun þó einnig hafa áhrif á ákvörðunina. Ef Bournemouth er í fallbaráttu gæti félagið ákveðið að halda Scott til að styrkja möguleika sína á að halda sæti sínu í deildinni.
Félagið hóf tímabilið með þá afstöðu að engir af helstu leikmönnum þess, þar á meðal Scott, Rayan og Eli Junior Kroupi, yrðu seldir fyrir sumarið 2027. Sú afstaða hefur þó breyst og Bournemouth er nú tilbúið að skoða sölu á Scott ef tilboðið stenst væntingar.
Bournemouth telur sig geta farið fram á háa fjárhæð í ljósi þess hve miklir peningar hafa verið greiddir fyrir miðjumenn í ensku úrvalsdeildinni.