Fotbolti.net
14.10.26 - 12:16
Elvar Geir Magnússon

Staða Elísabetar skoðuð - „Ákvörðun tekin á næstu dögum“

Elísabet Gunnarsdóttir.

Elísabet Gunnarsdóttir.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
„Engin ákvörðun hefur verið tekin enn, en staðan verður metin á næstu dögum," segir Pierre Cornez, talsmaður belgíska fótboltasambandsins.

Líklegt er talið að Elísabet Gunnarsdóttir verði látin taka pokann sinn eftir að belgíska kvennalandsliðið tapaði gegn Póllandi í umspili um HM.
Segir Belgíu hafa glatað mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar
TENGT EFNI

Segir Belgíu hafa glatað mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar

HLN segir að eitt að því sem hjálpi Elísabetu er hversu mikinn stuðning hún nýtur enn innan hópsins.

Tessa Wullaert, sem er 33 ára, sagði að það væru ein mestu vonbrigði ferilsins að missa af HM en hún lýsti yfir stuðningi við Elísabetu.

„Ég vona að hún haldi áfram. Ég held að við stöndum allar með henni. Við vinnum og töpum saman. Við horfum alls ekki bara á eina manneskju. Ég vona svo sannarlega að hún haldi áfram með okkur," sagði Wullaert.
Staða Elísabetar skoðuð - „Ákvörðun tekin á næstu dögum“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.