Fotbolti.net
14.10.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vill sjá Richarlison snúa aftur úr kuldanum

Richarlison.

Richarlison.

Canon

Mynd: EPA

Sparkspekingurinn Ally McCoist telur að Richarlison hafi sýnt með hugarfari sínu að hann eigi skilið að fá annað tækifæri í aðalliði Tottenham. Brasilíski framherjinn lék sinn fyrsta leik í tvo mánuði í gærkvöldi þegar hann spilaði með U21 árs liði félagsins gegn Cheltenham.
Richarlison furðar sig á frystingunni - „Hvers vegna?“
TENGT EFNI

Richarlison furðar sig á frystingunni - „Hvers vegna?“

Richarlison hefur ekki verið skráður í leikmannahóp Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann var orðaður við brottför í sumar og óskaði eftir því að yfirgefa félagið, en ekkert varð af fyrirhuguðum félagaskiptum. Hann var meðal annars orðaður við Everton og brasilíska félagið Vasco da Gama.

Framherjinn skoraði mark Tottenham í 2-2 jafntefli gegn Cheltenham og nýtti einnig vítaspyrnu sína þegar liðin mættust í vítaspyrnukeppni. Cheltenham hafði betur í henni, 7-6. McCoist hrósaði Richarlison fyrir hugarfarið og segir að Roberto De Zerbi, stjóri Spurs, ætti að íhuga að taka hann aftur inn í aðalliðshópinn.

„Ef stjórinn hefur betri valkosti skil ég það fullkomlega. En ef hann hefur þá ekki, þá finnst mér eins og Tottenham sé statt núna að Richarlison ætti klárlega að vera í kringum liðið,“ sagði McCoist. Hann velti þó einnig upp þeim möguleika að erjur Richarlison við Spurs hefðu skaðað samband hans við aðra leikmenn liðsins.

Tottenham hefur átt erfitt uppdráttar í sóknarleiknum í upphafi tímabils. Liðið eyddi yfir 300 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar en tókst ekki að skora í fyrstu fjórum umferðum úrvalsdeildarinnar og hefur aðeins skorað þrjú mörk í sex leikjum. Richarlison var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 11 mörk í 32 leikjum í öllum keppnum.
Var markahæsti leikmaður Spurs á síðasta tímabili.

Var markahæsti leikmaður Spurs á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.