Fotbolti.net
13.10.26 - 23:38
Brynjar Ingi Erluson

„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“

Lisandro Martínez

Lisandro Martínez

Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez, miðvörður Manchester United, lét heldur betur til sín taka eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í kvöld þegar hann gagnrýndi stjórnarmenn félagsins harðlega. Argentínumaðurinn var þó hvergi nærri hættur og hélt gagnrýninni áfram í öðru viðtali hjá CBS.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Martínez gagnrýndi Jason Wilcox, tæknilegan stjórnanda Manchester United, og sakaði stjórnarmenn félagsins um metnaðarleysi.

Hann telur að United hafi ekki gert nóg til að styrkja leikmannahópinn í sumar og að önnur stórlið séu einfaldlega með sterkari hópa.

Martínez lét þessi orð falla í viðtali við Amazon Prime en mætti síðan í annað viðtal hjá CBS þar sem hann ræddi við Peter Schmeichel, fyrrum markvörð United.

„Við þurfum að breyta mikið til í liðinu vegna þess hve margir leikir eru fram undan. Vandamálið er hins vegar að við erum ekki með jafn sterkan hóp og hin stórliðin.“

„Þegar fólk horfir á leikina er auðvelt að benda á leikmennina og stjórann. Það er alveg rétt og við tökum fulla ábyrgð á okkar frammistöðu. En ég ætlast líka til meira af félaginu og ég ætla ekki að þegja yfir þessu. Við þurfum að ræða metnaðinn hjá félaginu. Ef við ætlum að vinna Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina verðum við að geta keppt við hin stórliðin,“
sagði Martínez.

Schmeichel virtist ekki alveg vita hvernig hann ætti að bregðast við gagnrýninni og reyndi að beina umræðunni að jákvæðari hlutum. Martínez var hins vegar ekki á þeim buxunum að draga í land.

„Við erum að tala um sömu hlutina á hverju einasta tímabili. Ef við segjum ekki sannleikann mun ekkert breytast,“ sagði Martínez.

Schmeichel þakkaði honum þá fyrir viðtalið og virtist ekki hafa mikinn áhuga á að heyra meira frá Argentínumanninum.


Peter Schmeichel leið fremur óþægilega í viðtalinu

Peter Schmeichel leið fremur óþægilega í viðtalinu

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.